+354 6991240
Hægt er að nálgast úrval borgarmynda eftir mig hjá Gallerí List, Skipholti 50A og Artótek hjá Borgarbókasafni (Grófinni)
albeck
Myndlistarmaður
SÍM (Samband íslenskra myndlistarmanna)
Myndlistarmaðurinn Aron Leví Beck fæddist í Reykjavík árið 1989. Hann er lærður húsamálari og þegar óbilandi sköpunarþörfin læddist upp að honum, mörgum árum eftir útskrift, leitaði hann aftur í þann grunn. Þar fann hann bæði þekkingu og handbragð sem nýtist honum við samtvinnun ólíkra þátta sköpunarferlisins.
Uppfinningasemi og frelsi er í forgangi en viðfangsefni myndanna eru fjölbreytilegt. Þegar Aron Leví málar snýst allt um augnablikið og núið. Hann gefur sköpuninni frjálsan tauminn, leyfir efninu að taka stjórn og smám saman öðlast verkið eigið líf.
Aron Leví leitast í hvívetna við að miðla þeim hughrifum sem listin færir honum, veri þau ánægjuleg eða þyngri í meðförum. Stundum veit hann ekki nákvæmlega af hverju hann málar, en hann veit það eitt að svarið skiptir ekki jafn miklu máli og spurningin.
Einkasýningar
2023 - „Heima”, Óseyri, Reyðarfirði
2021 - Milli húsa, Hannesarholt, Reykjavík
2020 - Slökum á, Forréttabarinn, Reykjavík
2019 - Splash 3x10, Gallery O, Reykjavík
2019 - Upp til fjalla, Burstafell, Vopnafirði
2019 - Nýfæddur, Veitingastaðurinn Hornið, Reykjavík
Samsýningar
2022 - Naglinn, Borgarbókasafn Sólheimar
2022 - Art auction for Ukraine, Bíó paradís
2021 - Jólasýning, Gallery Port